Færsluflokkur: Konur og kvennabarátta

Alvitlausir kynjakvótar þvingaðir upp á sjálfstæð fyrirtæki

Því tókst að unga út þessu vitlausa frumvarpi, "félagshyggjufólkinu" á Alþingi, í tæka tíð áður en þau gæfu upp öndina sem ráðandi öfl hér á landi. Það þarf að taka til hendi eftir að þetta lið fer frá, fjarlægja rétttrúnaðarlöggjöf sem er til trafala í mannlegu samfélagi, ennfremur ýmsa ofurfrjálshyggjulöggjöf þeirra og hinna efnishyggjumannanna á þingi, þ.e. þeirra sem þannig hugsa í Sjálfstæðisflokknum (sem á sennilega við um meirihluta ráðandi manna þar, en um minnihlutann meðal óbreyttra flokksmanna nema þá helzt hinna ungu og óreyndu).

Kynjakvótar í stjórnum fyrirtækja er svona ga-ga-löggjöf sem einkum afdönkuðum Kvennalistakonum og ungum og æstum femínistum eins og Sóleyju Tómasdóttur dettur helzt í hug. En að þeim skuli hafa tekizt að fá alla hina í meirihlutanum í slagtog með sér um þetta mál, sýnir hve ástandið er orðið hörmulegt á þeim rauðbleika bæ.


mbl.is Kynjakvóti í stjórnum fyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri grænum femínistum leyfist allt, sem ekki er bannað*!

Silja Bára Ómarsdóttir fræðingur, sífelldur álitsgjafi fjölmiðla, kallar það "moldviðri" þegar hún sjálf er í fréttum sögð hafa haft rangt við í forvali VG í Reykjavík um helgina! Já, að prenta sjálf kjörseðil og fara með hann út í bæ til samherja, það leyfist í forvali Vinstri grænna, ef maður er örvæntingarfullur femínisti að leita uppi síðasta femínistann, því að engum hafði dottið í hug að banna þetta! "Prentum bara sem mest af kjörseðlum, ef við erum femínistar, þá verður veröldin falleg og bráðlega hægt að stinga upp í alla þessa leiðinlegu Moggabloggara sem voru að gera okkur þann óskunda að birta ummæli okkar sjálfra!"

* Ef einhver heldur, að þetta séu gamanmál einber í fyrirsögninni, þá er það misskilningur. Þannig tjáði nefnilega Silja Bára Ómarsdóttir skoðun sína á þeim reglum, sem gilda ættu um forval Vinstri grænna: "Það, sem ekki er bannað, er leyfilegt"! (frétt Rúv í gær). Í fréttinni var viðurkennt af hálfu Sóleyjarliðsins, að prentaðir hefðu verið út auka-kjörseðlar og farið með þá heim til fólks til að fá atkvæði þess og því komið til kjörstjórnar. Þorleifur Gunnlaugsson, helzti mótframbjóðandinn, lét hafa eftir sér, að hefði hann vitað, að þetta yrði leyft, hefðu hans stuðningsmenn gert það sama, en svo var ekki. Meira er um þetta mál í mjög áhugaverðri frétt í Mbl. í dag, 10/2, bls. 7, og er það efni í annan pistil hér.


mbl.is Moldviðri vegna þess að róttækur femínisti lagði miðaldra mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlustendur Útvarps Sögu hallast ekki að femínisma

"Telur þú að barátta femínista sé til hagsbóta fyrir þjóðfélagið?" var spurt á vef þeirrar vinsælu útvarpsstöðvar. JÁ sögðu 12%, 2% voru hlutlaus, en 86% sögðu NEI. Þetta (heyri ég) útleggja sumir sem andstöðu við kvenréttindi, en því fer víðs fjarri, heldur líkar mönnum ekki róttæknin í þeim femínistum sem kynnt hafa sig hér á landi og standa saman sem félag, fámennt, að mér skilst. Það er fölsun á hugtakinu femínismi að tala um það sem regnhlífarorð yfir allan stuðning við kvenréttindi; hugtakið kvenréttindastefna hefur náð og nær ágætlega yfir það.

Sverrir Stormsker var í viðtali við Markús Þórhallsson á Útvarpi Sögu í gær, og eru báðir Moggabloggarar. Þar lét Sverrir það út úr sér, hreinskilinn að vanda, að konur væru nú þegar búnar að ná jafnrétti á Íslandi. Hvað sýnist fólki um það?

2.253 tóku þátt í þessari könnun á vef Útvarps Sögu, í gær og fyrradag. 


„Kynjabilið" lagast af sjálfu sér, engin þörf á mannréttindabrotum í þeim tilgangi

Ísland telst nú í 1. sæti í vísitölu um jafnræði kynjanna í heiminum skv. nýrri skýrslu World Economic Forum, Global Gender Gap Report 2009.

  • „... fjöldi þingkvenna ... hafi farið úr 33% í 43% á tímabilinu, minni launamunur og aukin atvinnuþátttaka. Svo megi geta þess að Ísland skipi fyrsta sætið í valdeflingu kvenna í stjórnmálum (e. political empowerment) og sé það að þakka fjölda kvenna á þingi og fjölda kvenþjóðarleiðtoga í gegnum tíðina."

Þrátt fyrir þetta eru fáar konur meðal háttsettra embættismanna og framkvæmdastjóra, þar er landið í 46. sæti. Hér er því komið upp misvægi milli gengis kvenna í pólitík og athafnalífinu; með öðrum orðum: Þrátt fyrir minni reynslu þeirra við ábyrgðarstörf hefur þeim verið gefið forskot á stjórnmálasviði.

Nú vill „ráðherra sveitarstjórnarmála", maður sem reynt hefur að þrengja mjög frelsi og jafnvel tilvistarrétt sveitarfélaga (!), þvinga þau til að taka upp stífa kynjakvóta við kosningar til sveitarstjórna. Þetta er árás á mannréttindi, á jafnræði fólks, án tillits til kyns, aldurs eða menntunar, til að þjóna samfélaginu á sviði stjórnmála. Um það fjallaði ég í þessari grein í gær: Samgöngu- og sveitarstjórnaráðherrann Kristján Möller vinnur gegn mannréttindum.


mbl.is Kynjabilið minnst á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fósturdeyðingar á ábyrgð allra stjórnvalda, en á kostnað skattgreiðenda!

Þessi frétt af fjölgun fósturdeyðinga upp í 955 á ári ætti að minna menn á, að hér er tækifæri fyrir samdráttarstjórn til að fækka afætum á ríkisspenanum: heilum starfshópum sem þrífast á því að farga saklausum fóstrum og fá það greitt úr vösum okkar hinna! Vilji einhver (meðan núverandi ólög eru í gildi) viðhalda fósturdeyðingum ríkisins, er ekkert sem bannar honum að leggja til þess fé. Það er fráleitt að fría fólk við því að borga fyrir þessa "þjónustu" sem sumir óska eftir (stundum barnsfeður mæðranna eða foreldrar þeirra, sem þrýsta á veiklundaða, unga móður til að fara í "þessa aðgerð"). Þeim mun fremur sem þetta yrði látið kosta sitt (á annað hundrað þúsund hver fósturdeyðing), þeim mun minna yrði um svokallaðar 'óvelkomnar þunganir'.

En hugsjónir sósíalista og femínista eru gjarnan með þeim annmarka, að þau vilja, að aðrir þurfi að kosta framkvæmdina, ekki þau sjálf. Og þó að núverandi sósíalistastjórn hafi stofnað til svo geigvænlegs ástands, að nú þegar þarf að hefja niðurskurðarhnífinn hátt á loft, þá er hún samt áfram vís til að framlengja það alls óþarfa bruðl á ríkisfé sem átt hefur sér stað á þessu sviði áratugum saman – langt yfir 25.000 slíkar 'aðgerðir' frá árinu 1975. Bæði hægri og vinstri stjórnir bera hér ábyrgðina, þær hafa skellt skollaeyrum við öllum áköllum um að hlífa hinum ófæddu. Einnig sú staðreynd, til viðbótar við allt annað á þessu ári, er enn ein ástæða til að fá ný framboð á vettvangi stjórnmálanna.

Sláturhús-mynd fylgir fréttinni.


mbl.is Fóstureyðingum fjölgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnrétti bara fyrir konur?

Þessi þvæla um að gæta hagsmuna annars kynsins þvældist ekki fyrir leiðtogum verkalýðsfélaganna í vetur, þegar yfirgnæfandi fjöldi atvinnulausra var karlar. En nú óttast fulltrúar opinberra starfsmanna um sinn hag og "hafa áhyggjur af því að niðurskurður í opinberri þjónustu geti orðið til þess að fækka kvennastörfum." Vitaskuld hlýtur það að gerast, ef allt er með felldu, enda eru konur trúlega í meirihluta starfa hjá ríkinu.

Hr. Parkinson, ríkisbáknið, þarf að herða sultarólarnar á næstu árum, og það merkir m.a. fækkun starfa, hvaða leið sem farin verður að því markmiði. Ég hef t.a.m. tekið undir á hugmynd fjármálaráðherrans að fækka unnum vinnudögum (og skerða laun í samræmi við það). Eins er verið að minnka yfirvinnu og afnema tvíborgun starfa (t.d. að sérlauna nefndarstörf ríkisstarfsmanna sem funda þó í vinnutímanum!), og sjálfsagt er að reyna eftir megni að komast hjá því að ráða nýtt fólk í ýmis þeirra starfa, sem menn hætta í fyrir aldurs sakir eða af öðrum ástæðum.

Spurning hvort þetta ætti líka að eiga við um eina toppstöðuna hjá ríkinu ..... !   (en þetta er nú í spaugi mælt).


mbl.is Áhyggjur af kvennastörfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki aðeins þeir vanhæfu detta út af þingi

Gunnar Svavarsson missti ekki þingsætið af því að hann hafi staðið sig illa. Hann stóð sig of vel, miklu betur en Þórunn Sveinbjarnardóttir, og það er ekki vel liðið í rauðsokkugarði Ingibjargar Sólrúnar. Maðurinn var beinlínis þvingaður til að taka ekki þátt í prófkjöri flokksins nú í vetur – ekkert mátti ógna stöðu þessarar stöllu Ingibjargar.

Svo halda sumir, að konur sem konur séu lausar við ofstjórnarhætti og bellibrögð. Fjarri fer því. En það er kona, sem á vefsíðu Baldurs Hermannssonar um þessi mál lætur þessi orð falla:

  • "Ingibjörg Sólrún gat aldrei fyrirgefið Gunnari að vinna vinkonu sína í prófkjörinu fyrir síðustu kosningar og vinkonan vermir nú 3. sæti í kraganum og viti menn, hætt var við fléttulistann í kjördæminu svo að hún félli ekki niður í 4. sæti. Kíkið á þetta, þetta er staðreynd."

mbl.is Takk fyrir, búið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prófkjörin afsanna málflutning kvóta-femínista

Það er augljóst af ýmsum úrslitum, t.d. í Kraganum hjá Framsókn, þar sem konur unnu fimm efstu sætin! Nú kemur 'fléttulista'-reglan þeim sjálfum í koll, einnig Samfylkingarkonum o.fl. Kona var efst á D-lista á Suðurlandi, lista VG í Kraganum (Guðfríður Lilja), lista Frjálslyndra þar sömuleiðis (Kolbrún Stefánsdóttir), Samfylkingar í Reykjavík (Jóhanna) o.s.frv.

  • Sjá einnig um annað mál hér neðar: Konur í stjórnarskrárnefnd! – en hvað er málið? – en klárum fyrst fléttulistamálið.

Margoft hef ég og aðrir gagnrýnendur róttæks femínisma snúizt gegn þeirri svokölluðu 'jákvæðu mismunun', sem fólgin er í kynjakvótum. 'Jákvæð mismunun' er ekkert annað en mismunun.

Gagnrýni mín hefur ekki hvað sízt byggzt á því, að mjög er eðlilegt, að fólk, sem náð hefur langt í félagsmálum, sveitarstjórnarpólitík og athafnalífi, auk fólks með góðar prófgráður og langan feril í stjórnunarstörfum og opinberri stjórnsýslu, eigi almennt auðveldara en þeir, sem skemmra hafa náð, með að fá gott gengi í landsmálapólitík og í forystu fyrirtækja í atvinnulífinu. Þetta kemur allt með kalda vatninu, af því að konur eru að sækja geysilega fram í menntun, eru t.d. í yfirgnæfandi meirihluta ekki aðeins nemenda í háskólum, heldur einnig í hópi nýútskrifaðra. Allt á það eftir að skila sér, en fyrst tekur vitaskuld við starfsferill, þjálfun og frekari þroski – það nær yfirleitt enginn beint inn á þing nýkominn með prófgráðu, enda ekkert sjálfsagt við það.

Þegar konur hafa mannað mörg ábyrgðarstörfin á millistigum stjórnkerfis, athafnalífs, menningar og félagsmála, þa fer það að gerast nánast eins og af sjálfu sér, að þær eflast í færni og sækja fram til frekari áhrifa. Þetta átti sér einmitt stað nú í þessum prófkjörum.

En þá fór kynjakvótareglan skyndilega að taka upp á því að snúast gegn konunum sjálfum! Karlarnir troða sér upp á við á listunum, þótt þeir hafi ekki átt það skilið að mati kjósenda. Framsóknarflokkurinn missir þannig t.d. af því tækifæri að geta höfðað til kvenkynskjósenda í Kraganum út frá því, að konur séu þar í efstu fimm sætum. Einhver gæti reyndar sagt: "Ja, það verður nú líka að höfða til karlanna!" En svona völdu Framsóknarmenn sjálfir, og er það þá ekki það sem þeir telja æskilegt fyrir kjósendur?

  • Í framhjáhlaupi má geta þess, að hugsanlega er öflugur framgangur kvenna í prófkjörunum því að þakka eða kenna, að kjósendur treysta orðið síður karlmönnum en konum í politík – þeir hafi brugðizt svo víða á gróðærisskeiðinu með hroka sínum og yfirgangi og ekki reynzt standa undir væntingum. Sjáið t.d. yfirburðafylgi Jóhönnu í Reykjavík, en hins vegar Össur Skarphéðinsson, sem einn gaf kost á sér í 2. sæti listans þar, en fekk þó ekki nema þriðjung greiddra atkvæða! Tveir af hverjum þremur hafa því sett aðra manneskju í það 2. sæti! (vafalaust margir konu!).

"Konur í stjórnarskrárnefnd!' – hvað er málið'?!

Af hverju var ekki skipað réttlátlega í þessa stjórnarskrárnefnd út frá hárlit og húðlit? Af hverju var ekki tekið tillit til landshlutakvóta? Hvers eiga Austfirðingar og skolhærðir að gjalda?! – Þannig mætti allt eins spyrja eins og um hitt, af hverju konur séu svo fámennar í nefndinni samkvæmt tilnefningum flokkanna – einungis ein kona á móti átta karlmönnum. Um þetta gengur fram kona eftir konu til vitnisburðar á þessu fréttamyndbandi, og hneykslun þeirra eru lítil takmörk sett. – En hvers eiga þá svarthærðir að gjalda?! Þannig gætum við allt eins spurt, því að yfirleitt er það nú toppstykkið, sem þarf að vera í lagi til að fást við flókin úrlausnarefni, ekki kjallarahæðin í mannfólkinu.

Ég átti um þetta snarpa rökræðu við alkunnan femínista, Katrínu Önnu Guðmundsdóttur, á vefsíðu hennar: Íslenska karlrembubananaþjóðfélagið. Lítið á það, lesendur góðir, og segið mér svo, hvernig mér hafi tekizt til.


Guðsteinn Haukur í Mogganum

  p1170156 792654.jpg Gaman er að sjá góðan bloggvin fá uppslátt á síðum hins virðulega Morgunblaðs. Guðsteinn Haukur Barkarson er einn af kunnustu Moggabloggurum og vinsæll meðal lesenda, m.a. á trúarvefnum, enda opinn fyrir allri umræðu og viðræðugóður, eins og ég hef sjálfur kynnzt, nú síðast í þætti okkar um kristindóm og stjórnmál á Omega-stöðinni. Hér á myndinni erum við ekki að lyfta okkur upp með ölföngum eftir þáttinn, heldur staddir á bloggvinafundi kristinna á A. Hansen í Hafnarfirði, þar sem ég hitti í fyrsta sinn marga góða málvini af netinu, svo sem sjálfa "Guðskerlinguna" Vopna-Rósu, Conwoy, Lindu og fleira gott fólk. Linda tók þessa mynd, sem Haukur sá svo um, að farið hefur víða.

Ég vil skjóta því hér að, að Rósa Aðalsteinsdóttir á Vopnafirði hefur þá auðmýkt gagnvart Guði til að bera, að þegar "Guðskerlingar"-ávarpinu var skellt á hana, fannst henni það einungis sannur heiður, sem það og er, en þó er hún langt frá því að vera komin á kerlingaraldurinn! Rósa er trúr og tryggur boðandi Orðsins og ómissandi hér á Moggabloggi.

En aftur að Guðsteini Hauki. Fyrri hluti blogggreinar hans, Til hamingju með daginn konur! birtist í Mbl. í dag og heiðrar konur sem vert er – umfram allt hans eigin, hana Bryndísi. Hún er sjálf Moggabloggari, langt komin í guðfræðinámi og af gagnkristnum komin, dóttir Böðvars Björgvinssonar, sem mikið er í spunnið, eins og sjá má af vef hans; þar er hann m.a. að birta merkar skýringar föður síns við Biblíuritin, en sá var Björgvin Jörgensson kennari, stofnandi og formaður KFUM á Akureyri um margra áratuga skeið, kórstjóri og höfundur trúarljóða; er vefur Böðvars með þeim gagnlegri fyrir kristna lesendur og með tenglum á góðar vefsíður.

Já, til hamingju, Haukur, með þetta 'breakthrough' þitt inn í Morgunblaðið! Ég vænti þar fleiri pistla þinna og greina í framtíðinni. Vel tókst líka til hjá þér sem þáttastjórnandi í fyrsta sinn, þar sem þú hljópst í skarðið fyrir hinn ágæta Friðrik Schram í þáttaröðinni Trúin og tilveran á Omega-sjónvarpsstöðinni. Við félagarnir þrír eigum það sammerkt að láta engan telja okkur trú um, að það sé annað en þjóð okkar til sæmdar og blessunar að gefa sig heils hugar að kristinni trú.

Og sannið þið til, Guðsteinn Haukur á eftir að láta til sín taka á vettvangi þjóðlífsins.


Femínistafrekjurnar – er stund þeirra komin?

Þær fara mikinn núna femínistafrekjurnar í Samfylkingu. Ekki er fyrr komin upp krafa um persónukjör en Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir krefst þess, að annar hver frambjóðandi eigi að vera kona! Vill greinilega ekki láta lýðræðið ráða. Í SV-kjördæmi er Gunnari Svavarssyni, farsælum og vinnusömum þingmanni, bolað frá því að bjóða sig fram að þessu sinni af Ingibjargarliðinu, því að honum skal ekki fyrirgefið að hafa unnið glæstan sigur á rauðsokkunni Þórunni Sveinbjörnsdóttur í síðasta prófkjöri Samfylkingar. Þrátt fyrir að Þórunn næði naumlega inn á þing, en Gunnar leiddi listann, var það hún sem fekk umhverfisráðuneytið, enda í kærleikum við Ingibjörgu Sólrúnu frá Kvennalistaárunum. Og þetta er fólkið sem talar hástöfum um lýðræði! Hvers vegna mega óbreyttar Samfylkingarkonur ekki treysta karlmönnum til verka, meðan þær sjá ekki aðra hæfari? Enn verra er þó, ef þetta lið ætlar sér að eyðileggja vonir margra í öðrum framboðum um nýbreytni persónukjörs, sem stórlega eykur valkost kjósenda, vonandi í sem flestum flokkum. – Stækur er hann orðinn þessi herskái femínismi og engin furða, að sumir eru farnir að tala um femínazisma ...

PS: Ásta Ragnheiður var lengi bekkjarsystir mín, en "vinn það ei fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans." Það er kannski ljótt orð frekja, en öll höfum við notað það um fólk sem sýnt hefur okkur persónulega ágengni. Ég kalla hitt miklu meiri ágengni að þrengja kosti samborgaranna í stórum stíl með óumbeðinni forræðishyggju, sem á sér að forsendu einstrengingslega hugmyndafræði.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband