Mánudagur, 27. ágúst 2007
Góðhesta ættir og manna
Vart mun mér úr minni líða, þegar dr. Tómas Helgason, fyrrum prófessor og yfirlæknir á Kleppi, lét þau orð falla í erindi á fundi Ættfræðifélagsins, að illa yrði komið fyrir þeim vísindum, sem fjalla um mannlegar erfðir og erfðaeiginleika, þegar ættarþekkingu hefði farið svo aftur vegna ættleiðinga og tæknifrjóvgana, að ættfræði hesta og hunda stæði þá á hærra stigi en þessi gamla fræðigrein Íslendinga. Þetta kom mér í hug, er ég sat á góðu hrossabúi að Akurgerði í Ölfusi í skjóli venzlafólks míns [1] og fletti þar ýtarlegum hrossabókum Gunnars Bjarnasonar, Jónasar Kristjánssonar, Hjalta Jóns Sveinssonar o.fl. góðra manna, auk tímarita á þessu sviði. Þar blasa við svo langar og miklar ættartölur og gjarnan svo alhliða rakið í fjölda ættleggja (og þá upp í 6. lið), að margur maðurinn, a.m.k. erlendis, mætti prísa sig sælan fyrir þvílíka ættvísi í eigin ranni.
Gaman er að bera hér saman rakningu eins ættleggs úr hrossakyni hornfirzku og annars úr mannkyni (vestfirzku mestan part). Fyrri ættleggnum tókst mér að raða saman úr ættartölum í tveimur af hrossabókum Jónasar Kristjánssonar (fv. ritstjóra DV) og einu hrossatímariti, og má mörgum þykja til um, hve langt er hægt að rekja þessar ættir, 18 kynslóðir, og hefur þó trúlega ein bætzt við að auki. Mannlegu ættrakninguna fer ég svo jafnlangt með í kynslóðum talið, en heldur nær það lengra inn í blámóðu aldanna, til kaþólskra miðalda, og uni ég mér þar vel, eins og lesendum mínum á að vera orðið ljóst fyrir löngu.
En svona er þá í fyrsta lagi hornfirzki ættleggurinn:
- Skjóna frá Hólmi; undan henni var:
- Jörp frá Árnanesi; undan henni var:
- Rauður frá Árnanesi; undan honum var (o.s.frv.):
- Óða-Rauðka frá Árnanesi (sem var reyndar fjórföld formóðir Blakks nr. 9 hér á eftir)
- Brúnn frá Árnanesi
- Brúnn yngri frá Árnanesi
- Þór frá Hólum [í Hornafirði] (nr. 56 í Hestabókum Jónasar Krjs.)
- Streitis-Blakkur
- Blakkur frá Árnanesi; hlaut 1. verðlaun í Meðalfellsrétt árið 1930 sem og við Laxárbrú í Hreppum 1933 og 1937, einnig 2. verðlaun með afkvæmum 1933 í Hornafirði; mikill ættarhöfðingi; felldur 1939 vegna fótbrots; þekktir forfeður og formæður: 44, sumir þá raunar taldir oftar en einu sinni vegna skyldleikaræktunar (nr. 129 í Hestabókum Jónasar, með yfirliti þar sömuleiðis um helztu afkomendur hans) [2]
- Víkingur frá Árnanesi
- Skuggi frá Bjarnanesi í Nesjum [3] (nr. 201 í Hestabókum Jónasar)
- Nökkvi frá Hólmi (nr. 260 í Hestabókum Jónasar)
- Þröstur frá Reynistað
- Jörp frá Holtsmúla [í Skagafirði] (nr. 3781 í Hestabókum Jónasar)
- Hrafn frá Holtsmúla (nr. 802 í Hestabókum Jónasar)
- Adam frá Meðalfelli (nr. 978 í Hestabókum JK); þekktir forfeður hans og formæður í 5. kynslóð eru tuttugu og í 6. kynslóð 28 talsins, sumir þá raunar tvítaldir vegna skyldleikaræktunar [4], IS1979125040
- Eva frá Skarði (IS19911286799), fædd 1991
- Barri frá Fellskoti (IS1998188471), fæddur 1998 [5]
Með sama hætti má rekja forfeður okkar Íslendinga, raunar miklu lengra, allt til landnáms og fram fyrir það. En tökum hér einn ættlegg, sem nær yfir jafnmargar kynslóðir, 18, og sjáum hve langt hann leiðir okkur:
- Björn Einarsson Jórsalafari, sýslum. í Vatnsfirði, f. um 1350, d. 1415
- Vatnsfjarðar-Kristín, f. um 1377, höfðingskona í Vatnsfirði, gift Þorleifi sýslum. Árnasyni
- Sólveig Þorleifsdóttir, systir Björns ríka, riddara og hirðstjóra á Skarði, en barnsmóðir Sigmundar prests Steinþórssonar í Miklabæ
- Jón Sigmundsson lögmaður, mikilhæfur, en lánlítill, d. 1520, kvæntur Björgu Þorvaldsdóttur búlands, og var hjónaband þeirra þrætuepli Gottskálks biskups Nikulássonar
- Guðrún Vatnshyrna, átti Jón Hallvarðsson
- Jón Jónsson, bóndi á Auðunarstöðum í Víðidal
- Sr. Arngrímur Jónsson lærði, f. 1568, d. 27. júní 1648, prófastur og officialis á Melstað, merkur fornmenntamaður (húmanisti) og samstarfsmaður frænda síns Guðbrands biskups
- Jón Arngrímsson, bóndi í Sælingsdalstungu í Dölum
- Margrét, kona Guðmundar prófasts í Selárdal Vernharðssonar prests
- Sr. Þórður Guðmundsson, d. 1741, aðstoðarprestur í Vatnsfirði, prestur á Grenjaðarstað (bróðir Þorláks prests og sýslumanns, föður sr. Jóns skálds á Bægisá), kvæntur Halldóru Hjaltadóttur prófasts og listamanns í Vatnsfirði, Þorsteinssonar
- Sr. Þorsteinn Þórðarson (um 1733-1809), prestur á Stað í Súgandafirði
- Sr. Þórður Þorsteinsson (1760-1846), prestur í Ögurþingum
- Sr. Magnús Þórðarson (1801-1860), prestur í Hvítanesi og á Rafnseyri, skáldmæltur, bróðir sr. Þorsteins í Gufudal, ættföður Thorsteinsson-ættar
- Hjalti Magnússon (1839-1899), kennari, formaður, vinnumaður og hagyrðingur við Djúp og víðar, bróðir Þórðar alþm. í Hattardal, föður Þórðar skálds Grunnvíkings
- Hinrik Hjaltason (1888-1956), vélstjóri og járnsmíðameistari í Neskaupstað, hálfbróðir samfeðra Magnúsar Hj. Magnússonar, 'skáldsins á Þröm' (fyrirmyndar Ólafs Kárasonar Ljósvíkings)
- Jens Hinriksson (1922-2004), vélstjóri á togurum Tryggva Ófeigssonar og í Áburðarverksmiðjunni, bróðir Jósafats heitins, vélstjóra og frkvstj. J. Hinriksson hf.
- Jón Valur Jensson, f. 1949
- Katrín Jónsdóttir, f. 1976, og systkini hennar
=-=-=-=-=-=-=-=-=-==-=-=-==-=-=-=-==-=-=-=-==-=-=-=-==-=-=-=
[1] Sbr. blogg mitt hér fyrir skemmstu: Hestamannsvísur.
[2] Jónas Kristjánsson: Ættfeður frá Óðu-Rauðku til Hrafnkötlu, Hestabækur 1990, Íslenzk bókadreifing, bls. 56-57.
[3] Frá Bjarnanesi (ekki Árnanesi), skv. uppl. Guðm. Birkis Þorkelssonar í færslu hans 27.8. 2007 í gestabók þessa vefseturs (sjá nánar þar).
[4] Jónas Kristjánsson: Heiðajarlar frá Hervari til Hrafnfinns, Hestabækur 1989, útg.: höf.
[5] Stóðhestar 2004. Eiðfaxi (sérhefti), bls. 52.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Íþróttir, Vinir og fjölskylda, Ættfræði | Breytt 21.9.2007 kl. 03:30 | Facebook

Athugasemdir
Nú er ég ánægður með þig félagi, kominn í stóðið!
Það er ég viss um að ef þú tækir þig til og færir í allar hrossaréttir norðanlands í haust, yrðir þú að lokum búinn að ánetjast fyrir lífstíð.
Þú skalt nú samt vara þig, það er engin leið til baka og ég tala af reynslu!
Bestu kveðjur!
Árni Gunnarsson, 27.8.2007 kl. 00:40
Kærar þakkir, félagi, og hafa skal ég orð þín hugföst.
Jón Valur Jensson, 27.8.2007 kl. 01:07
Væri ég alvöru-hestamaður, myndi ég þurrka þetta innlegg út!!!
Jón Valur Jensson, 27.8.2007 kl. 18:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.