Nýútkomin bók, Dýrmætast er frelsið, mun vekja mikla athygli

Ég fekk í pósti eftirfarandi:

  • "DÝRMÆTAST ER FRELSIÐ.  Á bókamarkaðinn er nú komin gagnmerk bók um innflytjendamálin í Noregi, eftir Helge Storhaug í þýðingu Magnúsar Þórs og gefin út af Bókafélaginu Uglu. Kilja í 360 bls. Á góðu verði.
  • Bókin er eiginlega reynslusaga Norðmanna af meir eða minna misheppnaðri innflytjendastefnu gagnvart einum hóp innflytjenda, þ.e.a.s. múslíma, þar sem samþættingin hefur að stærstum hluta brugðist, til óhemju tjóns fyrir hið norska samfélag.
  • Hún sýnir hvernig hópar múslíma [sumir, ekki allir, geri ég ráð fyrir, innsk. jvj] hafa misnotað gestrisni og velferðarkerfi Norðmanna til að mata krókinn á kostnað almennings í Noregi. Hún tekur fyrir ferjuhjónabönd, þvingunarhjónabönd, pólitískar og einstaklingsbundnar hótanir og þvinganir múslíma í garð eigin fjölskyldumeðlima og annarra Norðmanna, heiðursmorð, umskurði, pólitísk vers úr Kóraninum, ættbálkasamfélagið og hugsunarhátt hans, hjónaband systkinabarna, skapandi svindl og hugmyndaauðgi varðandi þau mál, gildismat múslíma, kennsluaðferðir þeirra og innrætingu, hvernig múslímar [sumir, geri ég ráð fyrir, jvj] éta innanfrá gestgjafaþjóðfélagið og eyðileggja það smám saman eftir því sem þeim fjölgar, hversu vel aðrir trúarhópar aðlagast að frelsinu í Noregi, auðtrúa og hrekklausa stjórnmálamenn og svo mætti endalaust telja.
  • Bókin er hreinn fjársjóður fyrir þá sem vilja vera tilbúnir stjórnlausu innflytjendaflæði til Íslands um leið og við göngum inn í ESB og hafa hugmynd um það hvernig fást á við múslíma sem [hér mun vera átt við öfgafulla islamista, innsk. jvj] hafa engar fyrirætlanir um að samþættast gestgjafaþjóðfélaginu á nokkurn hátt nokkurn tímann og fyrirlíta gildismat þeirra og íbúa aðra en múslíma.
  • ------------------------------------
    Arafat forseti Palestínumanna um árabil gaf þessi fyrirheit: ,,Fyrst tökum við laugardagsfólkið (Gyðinga), síðan tökum við sunnudagsfólkið (hið kristna fólk)."

Bókafélagið Ugla hefur netfangið nb@simnet.is og síma 698 9140. Framkvæmdastjóri þess er hinn valinkunni Jakob F. Ásgeirsson sagnfræðingur. Bréfið hér fyrir ofan er þó ekki hin opinbera kynning forlagsins, heldur sent mér af einum sem lesið hafði bókina. Sjálfur hef ég ekki lesið hana né séð og á því alveg eftir að leggja mat á hana fyrir sjálfan mig.

Meðal góðra bóka, sem Jakob hefur áður gefið út, eru Moskvulínan eftir dr. Arnór Hannibalsson, ritgerðasafn eftir Kristján Albertsson, fjölmiðla-árbækurnar eftir Ólaf Teit Guðnason og verk Björns Bjarnasonar um kaldastríðsárin. Þá gefur hann einnig út hið vandaða tímarit Þjóðmál.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Takk fyrir innleggið, Þrymur. Já, mér sýnist þetta geta stefnt út í þjóðfélagslega öryggiskreppu í Skandinavíu og víðar, þegar líður á öldina. Phobia þýðir ótti, ég er ekki viss um að viðnám sumra innfæddra og áhyggjur þeirra mótist bara af hræðslu; bæði neikvæðari tilfinningar kunna að ráða þar för sem og aðrar mjög jákvæðar.

Jón Valur Jensson, 21.11.2008 kl. 00:53

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Lýst vel á og þið ættuð að kaupa 63 eintök og færa þingmönnum nú á laugardaginn.  

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.11.2008 kl. 01:37

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér, Rósa. Góð hugmynd, en bíðum samt með þetta. En þeir hafa kannski gott af þessu fyrir jólin.

Kær kveðja, 

Jón Valur Jensson, 21.11.2008 kl. 03:19

4 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Þakka þér Jón Valur, að vekja athygli á þessari stórmerku og vel skrifuðu bók. Ég var að ljúka við að lesa hana.

Bókin er ekki skrifuð til að auka hatur á múslímum, heldur til að vekja okkur og aðvara við þeirr grimmd sem fylgir ofsatrú og hatri íslamista.

Þrátt fyrir að bókin segi mest frá hryðjuverkum þeirra í Noregi, þá sýnir hún okkur hið rétta eðli íslamista, sem er vaxandi ógn hér á Norðurlöndum og víðar í Evrópu.

Mánaguðinn Allah er ekki Guð kærleika, friðar né fyrirgefningar. Ég hvet alla kristna að sýna múslímum, og öðrum, í lífi okkar, hvern við trúum á.  

Dýrmætast er frelsið, er bók sem er þess virði að lesa og gefa.

Friðar kveðja
olijoe

Ólafur Jóhannsson, 21.11.2008 kl. 14:06

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara 3 atriði Jón Valur:

  • Eins og þú veist sem háskólamenntaður maður og víðlesinn þá er hægt að sjá sama hlutinn frá 2 áttum.
  • Við erum þegar hluti af innri markaði ESB og að frjálsu flæði fólk milli landa EES landana og vinnu.
  • Það segir jú nokkuð að maður að nafni Magnús Þór skuli þýða þessa bók. Við erum jú sennilega að tala um Magnús Þór Hafsteinsson. Finnst maður sem er jafn öfgafullur og hann sé ekki marktækur. Hann er nú búinn að skrifa bók sjálfur um þetta og nú kemur önnur á innan við ári sem hann stendur að.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.11.2008 kl. 21:10

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Segðu mér, Magnús, hvað er það öfgafyllsta sem þú veizt af í orðum eða háttum hans nafna þíns? Áþreifanlegar staðreyndir, takk, engar þokukenndar, óstaðfestar fullyrðingar frá sjálfum þér.

Svo þurfum við að segja upp þessum skaðræðis EES-samningi. Án hans hefði Icesave-málið aldrei orðið til á okkar ábyrgð.

Jón Valur Jensson, 21.11.2008 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband