Nú er komið að bókamarkaði fyrir Hafnfirðinga sem aðra – ættbækur, niðjatöl, stéttatöl, manntöl, bænda- og búendatöl, handbækur og hjálpargögn

Íslenzk ættfræði státaði ekki af mörgum útgefnum titlum, þegar ég fekk þessa "bakteríu" 16 ára gamall. Síðan hefur átt sér stað bylting í þessari grein. Dæmi þess sjást á bókamarkaði á mínum vegum frá kl. 12 og fram undir kl. 18 þennan laugardag, í jólasölu Fjarðarportsins að Kaplahrauni 2–4 í Hafnarfirði – keyrt að gatnamótum Hafnarfjarðar-, Álftanes- og 'Keflavíkurvegar', beygt til vinstri inn gamla Keflavíkurveg, beygt til vinstri nál. Fjarðarkaupum og þar inn í hverfið – sjá HÉR (að vísu sagt þar: Kaplahraun 6, en jólabasarinn og bóksalan verður í húsi nr. 2) eða á korti nr. 12 í símaskrá, reit 1A. Spyrjið til vegar, ef þið villizt!

Eftirfarandi ættfræðirit eru meðal þeirra, sem fáanleg eru hjá mér í Ættfræðiþjónustunni (s. 616–9070). Skráin er svo til óflokkuð, en ég mun síðar birta hana í betra formi.

Manntöl á Íslandi, sérmanntöl í Reykjavík og Hafnarfirði, íbúaskrár, einnig skattskrár og bæjarskrár.

  • Ættir Austfirðinga I–IX, fallegt eintak innb.
  • Ættir Austur-Húnvetninga I–IV (síðasta eintakið, í plastinu, uppselt í forlaginu).
  • Víkingslækjarætt, I–VI, eitt sett í plastinu og 1 eint. af I–IV
  • Ættir Síðupresta
  • Fremra-Háls-ætt I–II.
  • Bergsætt I–III eftir dr. Guðna Jónsson.
  • Vestfirzkar ættir I–IV
  • Kollsvíkurætt, mikið fágæti.
  • Ættir Þingeyinga I og III–XI.
  • Hver er maðurinn? I–II,
  • Íslenzkar æviskrár I–VI,
  • Lögréttumannatal,
  • Presta tal og prófasta,
  • Guðfræðingatal,
  • Lögfræðingatal,
  • Læknar á Íslandi,
  • Prentarar á Íslandi,
  • Múraratal og steinsmiðja I–II (nýja útgáfan).
  • Rafvirkjatal I–II.
  • Verkfræðingatal.
  • Vigurætt IV, V, VIII, X.
  • Hallbjarnarætt
  • Briemsætt I–II.
  • Knudsensætt I–II.
  • Róðhólsætt (skagfirzk).
  • Ölfusingar 1703–1988.
  • Krákustaðaætt.
  • Pálsætt undir Jökli.
  • Jóelsætt I–II.
  • Sjúkraþjálfaratal.
  • Viðskipta- og hagfræðingatal I–III.
  • Reykjaætt á Skeiðum I–V
  • Hreiðarsstaðakotsætt (úr Svarfaðardal) I–II.
  • Framættir, Fjölskylduskrár, Heimildir um ættfræði (sérprent úr Ættabókinni).
  • Iðnaðarmannatal Suðurnesja.
  • Lækjarbotnaætt I–II (nýja útgáfan, 1 eintak).
  • Gunnhildargerðisætt (úr Hróarstungu, N-Múl.).
  • Ófeigsfjarðarætt (af Ströndum).
  • Dr. Björn Magnússon: Ættmeiður.
  • Jóhann Eiríksson: Ættarþættir.
  • Manntal Reykjavíkur 1946, 1949
  • Blik, tímarit
  • Auðsholtsætt í Ölfusi I–II, mikið rit, þrídálka með fjölda mynda.
  • Bólu-Hjálmar – niðjar og ævi. Fallega útgefið rit.
  • Íslensk ættfræði, bókaskrá mikil, góð handbók og ýtarleg
  • Thorarensensætt I–II.
  • Lögreglan á Íslandi (síðasta eintakið)
  • Húsatóftaætt (úr Grindavík).
  • Bollagarðaætt (af Seltjarnarnesi).
  • Sýslumannaæfir II., IV. og V. bindi (af 5 bindum), innb.
  • Ormsætt, I–III (frá Fremri-Langey á Breiðafirði; bækurnar eru þó sex).
  • Önfirðingar. Æviskrár
  • Lárus Blöndal: Blöndalsættin. (1 eintak).
  • Tre islandske Adelsslægter (Kh. 1916, sérprent ljósprentað, 23 bls.). (1 eintak).
  • Jóhann Kristjánsson: Niðjatal Jóns Indíafara (14 s. sérprent). (1 eintak).
  • Félagatal Ættfræðifélasgsins, 1990, m/ágripi af sögu þess og ritskrá félagsmanna, 46 bls. (1 eintak).
  • Eyjólfur Jónsson: Fellskotsætt – niðjatal Eyvindar Þorsteinssonar bónda í fellskoti í Biskupstungum. Ísaf. 1966, 48+1 bls. (1 eintak).
  • Haraldur Pétursson: Ágrip af ættaskrá Ásgríms Jónssonar listmálara, sérprent, 15 s. (2 eintök).
  • Ætt Þórdísar Magnúsdóttur á Lækjarmóti á Bíldudal, 39 s. (1 eintak).
  • Indriði Þórkelsson: Búendatal Sands í Aðaldal (1945, sérpr. 1984, 17 s.)(1 eintak).
  • Skógargerðisbók.
  • Friðrik Theodór Ingþórsson: Niðjatal Gunnlaugs Björnssonar bónda á Óspaksstöðum í Hrútafirði og eiginkvenna hans (1979). (2 eintök)
  • Magnús Þorbjörnsson: Niðjatal Sigurðar Þorbjörnssonar og Ingigerðar Björnsdóttur frá Króki í Ölfusi, Rv. 1985, 125 s., með myndum og nafnaskrá.
  • Ættartala Vigdísar Guðnadóttur á Keldum, handrituð, 56 s., ljósprentsútgáfa 1985 (1 eintak).
  • Íbúaskrár Reykjavíkur, margir árgangar.
  • Zoëgaætt (ný, í plastinu).
  • Járnsíða...
  • Grímsnes, búendur og saga, I–II, glæsilegt rit, 1 eintak, í plastinu.
  • Manntal á Íslandi 1703 (og 1729), mjög sérstakt eintak með viðaukum.
  • Manntal á Íslandi 1801, öll þrjú bindin (1 notað eintak og 1 x II–III).
  • Manntal á Íslandi 1845, öll þrjú bindin í plastinu og 1 lítt notað af N- & A-amti
  • Manntal á Íslandi 1910, I. bindi: Skaftafellssýslur.
  • Æviskrár Akurnesinga I–IV, í plastinu.
  • Borgfirzkar æviskrár I–IX, 2 eintök (flest/öll ónotuð, í plastinu).
  • Niðjatal Björns Eysteinssonar [að Grímstungu í Vatnsdal] og [kvenna hans þriggja], 285 s. (1991), með myndum og nafnaskrá (1 eintak).
  • Niðjatal Guðrúnar Guðmundsdóttur og Guðmundar Jónssonar frá Gafli í Víðidal (1995), 336 s., með myndum og nafnaskrá (1 eintak).
  • Ætta tal Þorsteins Eyjólfssonar á Mel á Seltjarnarnesi. Samantekið 1832 af Ólafi Snóksdalín. Lagað og með Athugasemdum aukið af Herra Biskupi Steingrími Jónssyni (ljóspr. 1983, 16 s.).
  • Vestur-Skaftfellingar I–IV.
  • Saga Njarðvíkur e. Kristján Sveinsson.
  • Saga lanmdsmóta UMFÍ 1909–1990, mikið rit fullt mynda.
  • Ásmundur Sigurðsson frá Vallaá. Ævi hans, ættir og niðjar.
  • Skrár yfir dána, fjöldi árganga.
  • Jón Skagan: Saga Hlíðarenda í Fljótshlíð.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband