Áskorendur, sem vilja þjóðaratkvæði, nálgast óðfluga 60.000 – þjóðarmet! – og minnt á nokkur aðalatriði

Þeim hefur fjölgað svo hratt, að þeir verða vísast komnir yfir 60.000 fyrir dagmál, en nú kl. 2.20 hafa 59.640 þegar skrifað undir. Þetta er orðin viðamesta undirskriftasöfnun í þjóðarsögunni, komnir um 4000 umfram þá, sem tóku þátt í undirskriftasöfnun Varins land í marz 1974. En kl. 3.20 eru undirskriftirnar orðnar 59.775, hefur fjölgað um 135 á einni klukkustund á þessum tíma sólarhrings!

Þetta undirskriftasöfnunar-met okkar myndi jafngilda um 12 milljónum Breta í undirskriftasöfnun þar! – og um þremur milljónum Hollendinga, alls 15 milljón manns! Við skulum sannarlega vona, að þeir taki eftir þessu. Mestu skiptir þó, að forsetinn okkar á Bessastöðum heyri þetta kröftuga ákall og gefi þjóðinni tækifæri til að segja nei eða já við nýju Icesave-löggjöfinni. Verði henni hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu, gæti fátt orðið löggjafarþingi okkar og lýðveldinu Íslandi styrkari stoð til að standa gegn óbilgjörnustu kröfum Breta og Hollendinga, því að allt mundi þetta vekja athygli á réttum málstað okkar (sjá neðar) og leggja þann þunga á fjendur okkar að ofbjóða ekki alþjóðasamfélaginu með því að kúga þjóð, sem hefur sagt sitt nei í fullum rétti, til að gera það, sem hún hvorki á að gera, vill gera né getur gert.

Brezkir og hollenzkir ráðamenn gætu reyndar, ef við höfnuðum þessum nýju lögum, gripið fegins hendi við lögunum frá því 28. ágúst, sem myndu líka gera okkur skattskyld brezka ríkinu og því hollenzka – bara ekki eins óhugnanlega! (annars eru helztu fjórir meginúrkostir skoðaðir í þessari samantekt: Hvað gerist, ef Icesave-frumvarpið verður fellt?).

Minnum á nokkur aðalatriði:

  • Skuldin er Landsbankans, einkabanka, ekki þjóðarinnar. Það hefur oft gerzt áður, að bankar hafi orðið gjaldþrota og fólk tapað fé sínu, án þess að ríkið hlypi undir bagga. Það gerðist í Kreppunni miklu og oft síðar. Ekki sízt hafa þeir, sem lögðu fé sitt í hávaxta-áhættureikninga orðið fyrir þessu, sbr. okkar eigin peningamarkaðssjóði.
  • Evrópubandalagið batt ekki svo um hnútana, að tryggingakerfi gætu staðið undir fullri tryggingu innistæðueigenda – og enn síður, þegar um kerfishrun væri að ræða.
  • Tilskipun Evrópubandalagsins,  94/19/EC, sannar sakleysi Íslands í Icesave-málinu. Ríki er EKKI skylt að greiða innistæðueigendum einkabanka bætur vegna tapaðra innistæðna, ef þau ríki hafa komið á fót innistæðutryggingakerfi. Það gerðum við árið 2000 í samræmi við lög okkar nr 98/1999 og þessa evrópsku tilskipun frá 1994. Því er ekki unnt að gera okkur ábyrg fyrir neinum innistæðureikningum.
  • "Ríkisábyrgð á innstæðutryggingum er í eðli sínu brot á samkeppnisrétti þar sem hún felur í sér ríkisaðstoð til einkarekinna fjármálastofnana. Væri slík ábyrgð almennt viðurkennd myndu innstæðueigendur leggja innstæður sínar hjá fjármálastofnun sem ætti heimilisfesti þar sem ríki stæðu best að vígi – væru efnuðust – og hefðu minnsta fjármálakerfið til þess að bera ábyrgð á. Frjálsri samkeppni fjármálastofnana á evrópska efnahagssvæðinu væri í einu vetfangi skipt út fyrir ríkisstyrkta fjármálastarfsemi væri slík ábyrgð talin felast í óljósum markmiðslýsingum Evróputilskipunar um innstæðutryggingar. Þá er ljóst að gera þyrfti ráð fyrir slíkri ábyrgð í ríkisreikningum aðildarríkja. Það er því niðurstaða hafin yfir vafa að ríkisábyrgð á Icesave-skuldbindingum sjálfseignastofnunar á ekki við rök að styðjast. Hollendingar og Bretar hafa ekki fært fram rök opinberlega fyrir gagnstæðri niðurstöðu." (Úr greininni Ríkisábyrgð á rakalausum skuldbindingum eftir Magnús Inga Erlingsson, sem er héraðsdómslögmaður með meistarapróf í Evrópurétti; HÉR má nálgast fyrri hluta þessarar stórmerku greinar hans; og HÉR, sem viðhengi í grein Lofts Þorsteinssonar og með hans leturbreytingum, er hún öll).
  • Samkvæmt sjálfri Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur gekk minnisblað tveggja embættismanna okkar til Hollendinga í október 2008 úr gildi í nóvember sama ár og hefur enga skuldbindandi þýðingu fyrir okkur.
  • Icesave-samningarnir brjóta gegn stjórnarskránni (hér er verið að vísa í afar athyglisverð grein Lofts Þorsteinssonar verkfræðings í Morgunblaðinu 29. desember sl.; sbr. einnig þennan stutta pistil minn: Icesave-ríkisábyrgðin er stjórnarskrárbrot).
  • "Árásargirni Bretastjórnar" (Friðr. Daníelsson verkfræðingur, sjá HÉR*) og Hollendinga er þvílík, að greiðslubyrðin yrði FIMMFÖLD á við það, sem lagðist á Þjóðverja með Versalasamningunum (sjá hér: Iceland approves UK payout after Icesave collapse claim, í 1. innleggi Ture Olsen, 1. jan. kl. 8:27 f.h. – já, endilega lesið innlegg Ture Olsen öll!).
  • Vextirnir, 5,55%, eru okurvextir í milliríkjasamningum og miðast í raun við viðskipti í áhættusamari geira, svo sem sjóflutninga. Einungis vextirnir eru rúml. 100 milljónir kr. Á DAG eða þrjá milljarða á mánuði, og við eigum ekki að borga! Sé þessari mánaðarupphæð skipt niður á 319.000 manna þjóðina, sem öll væri sögð skiptast niður í fjögurra manna fjölskyldur, þá kæmi það í hlut hverrar þeirra að borga a.m.k. 38.000 kr. í vexti af þessari handrukkun Breta og Þjóðverja – í hverjum mánuði í mörg ár! Og þetta eru bara vextirnir! (um höfuðstólinn, sjá hér: Pétur Blöndal: Það getur vel farið svo, að við borgum aldrei neitt af höfuðstólnum, aðeins vexti endalaust!).
  • Harka Breta er einnig þvílík, að þeir brjóta í leiðinni bann í reglum Evrópska efnahagssvæðisins við því að beita mismunun, því að brezku tryggingasjóðurinn hefur fengið lán frá brezka ríkinu, en hann þarf ekki að borga nema 1,5% í vexti! (og takið eftir því, að formið á þessum Icesavesamningum á að heita það, að íslenzki Tryggingasjóðurinn tali "lán" frá brezka ríkinu – sem sé: Bretarnir sjálfir tala um þetta í raun sem algera hliðstæðu við sitt eigið lán til sín eigin trygingasjóðs!) Mismunurinn – og þessi mismunUN í verki – nemur hundruðum milljarða!** Steingrímur meðfærilegi (ekki þó við íslenzka þjóð, heldur Brown-stjórnina) aftók það algerlega að þessi vaxta-mismunun yrði lagfærð, eins og hálærður hagfræðingur við Evrópu-stjórnmálastofnunina, dr. Daniel Gros, ráðlagði okkur – og þvílík er eymd okkar og Alþingis, að þessi einstæði Bretavinur, Steingrímur J. Sigfússon, komst upp með að gera þetta á ENGUM RÖKUM!**
Ég vil enda þetta á því að benda á, að sú mótbára, sem fram hefur komið frá ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur við því, að forsetinn synji lögunum staðfestingar sinnar, þ.e. að hann hafi í raun ekki leyfi til þess, af því að honum hafi verið kynnt frumvarpið, áður en það var lagt fram á Alþingi, sú mótbára stenzt ekki. Um þetta mál hefur verið rætt í ljósi sífellt nýrra upplýsinga, sem sumar hverjar hafa verið að koma fram nánast fram á lokadag 3. umræðu, og eru þar á meðal afgerandi atriði eins og ábendingar Daniels Gros, Ingibjargar Sólrúnar og margar aðrar, auk breyttra forsendna um skuldastöðu landsins, sem ættu að gera fyrirvarana frá í sumar enn mikilvægari en áður, í stað þess að þeim sé fleygt út að miklu leyti vegna undirgefni við Breta í samningunum. Forsetinn getur því ekki verið bundinn við neitt það, sem hann kann að hafa haldið um málið, þegar hann fekk frumvarpið fyrst til skoðunar.
 
Í VINNSLU 

mbl.is Áskorun afhent í fyrramálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Væri vel við hæfi að hengd væri á ykkur Fálkaorða,um leið og þið mætið til forseta, framvarðasveit sjálfstæðis Íslendinga.

Helga Kristjánsdóttir, 2.1.2010 kl. 02:34

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Kærar þakkir til þín Jón Valur Jensson, fyrir þrotlausa baráttu þína í þágu fósturjarðarinar.

Jónatan Karlsson, 2.1.2010 kl. 03:40

3 Smámynd: Pétur Þorsteinsson

Kærar þakkir Jón Valur Jensson. Þú hefur opnað mér hugarheim sem ég vissi ekki að væri til. Það er ekki ónýtt fyrir gamlan dýrafræðing.

Pétur Þorsteinsson, 2.1.2010 kl. 04:43

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

60.218 hafa þegar skrifað undir áskorunina kl. 10.13. – Hjartans þakkir fyrir allan stuðning við málstaðinn.

Jón Valur Jensson, 2.1.2010 kl. 10:15

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Og hér er vefslóðin á indefence.is.

Jón Valur Jensson, 2.1.2010 kl. 10:17

6 Smámynd: Þórólfur Ingvarsson

Kæri bloggvinur.

Um leið og ég óska þér og þínum gleðilegs nýs árs og þakka þér þína óeigingjörnu og þrotlausu baráttu fyrir þjóð okkar.

Það hefur verið mér ómetanlegt sem þú hefur miðlað mér af þinni miklu þekkingu og innsýn í öll þau mál sem þú hefur látið þig varða og eðli málsins vegna stendur uppúr Icesave.

Og um leið og ég þakka þér allt þetta bið ég þér og þínum Guðs blessunar um ókomna framtíð.

Þórólfur.

Þórólfur Ingvarsson, 2.1.2010 kl. 15:19

7 Smámynd: Elle_E

Jóhanna Sig., Steingrímur J. og stjórnarliðar gátu ekki lagst lægra en leggja á saklausan almenning dauðadóm sjálfstæðis okkar með 5 földum Versalasamningi.   Hvíklík ótrúleg bilun og ósvífni. 

Og svo bæta þau við blekkinguna og svívriðinguna með því að láta heiminn halda að Bretar séu að lána okkur fyrir ólöglegu rukkuninni.  Það hefur víða tekist að blekkja fólk því fólk kemur enn inn í umræuna víða og talar um peningalánið frá Bretum sem við þurfum að borga til baka.   Fjöldi fólks hefur enn ekki áttað sig á að Bretar eru ekki að lána okkur neitt, heldur eru þeir að fjárkúga okkur.   

Takk Jón fyrir að standa vaktina og fyrir alla þrotlausu vinnuna.  

Elle_E , 2.1.2010 kl. 16:21

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Innilegar þakkir til ykkar beggja, Þórólfur og Elle, fyrir alla ykkar samstöðu, einurð og óbilandi skýra siðferðishugsun í þessu máli, sem og hreinskilið tungutak! Já og heilar þakkir fyrir samferðina á liðnu ári, þótt ekki höfum við sézt eða ég ekki til ykkar, en þú reyndar verið úti á sjó, Þórólfur, og fylgist þó betur með en margur í landi. Þakka líka blessunarorð þín.

Einu vil ég bæta við þetta hjá þér, Elle. Á bls. 32 í hinni merkilegu upplýsinganámu, Mishcon de Reya-umsögninni 21.12. 2009 um Icesave2-frumvarpið, stendur þetta um hugtakið 'loan' í samningnum frá í október 2009 við Breta:

'Loan' is not a term defined in this agreement [þ.e.a.s. það er ekkert verið að skilgreina það hugtak í þessum samningi, innsk. jvj.], but it is defined in the Dutch Loan Agreement. The equivalent word in this agreement to 'Loan' in the Dutch Loan Agreement is 'Disbursement' and we suspect that the use of 'Loan' here is an error, and that 'Disbursement' should be used.

En 'disbursement' þýðir skv. Ensk-ísl. orðabók Arnar og Örlygs: "1. útborgun, greiðsla, 2. útgjöld; útlagt fé, framlag."

Málflutningsstofan Mishcon de Reya, sem eflaust er andvíg öllu því, sem heitið geti legal fiction í samningum og löggerningum, leggst sem sé gegn því, að hér sé talað um 'lán' frá brezka ríkinu og því hollenzka, heldur beri að tala um greiðslu eða útlagt fé [til Icesave-innistæðueigendanna]. Með þeim hugtökum er í raun ekkert gefið í skyn um að þessar útborganir þeirra (þ.e. úr ríkissjóðum sínum) séu 'lán' til Íslendinga, þ.e. ríkissjóðs Íslands, ellegar til Tryggingasjóðsins íslenzka, enda var það ekki svo!

Jón Valur Jensson, 2.1.2010 kl. 18:03

9 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Kæri blogvinur og nafni.

Ég óska þér og þínum gleðilegs árs og guðsblessunar á komandi ári og þakka þér fyrir upplýsandi skrif um Icesave málið.

Maður eins og ég, sem alist hefur upp á togurum frá unglingsaldri hefur tileinkað sér tungutak, sem ekki er sæmandi á opinberum vetvangi  Ég er semsagt búinn með kurteisu orðin ríkisstjórninni til handa, þannig að ég segi eins og Geir H. Haarde; "Guð blessi Ísland".

Þótt sumir ........, (þetta er ekki prenthæft) geri grín að þessum orðum, þá eru þetta máttugustu og fallegustu orð, sem stjórnmálaleiðtogi hefur sagt lengi. Þessir..... ættu að hafa það í huga, ef þeir geta nottað það vit sem Guð þeim gaf. Ég vona að forsetinn skrifi ekki undir, en þessi......maður er til alls vís, eins og dæmin sanna.

Jón Ríkharðsson, 2.1.2010 kl. 20:58

10 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

http://helgatho.blog.is/blog/helgatho/entry/999652/#comments

Ég hef orðið fyrir vonbrigðum með undirtektir - áskorun til forsetans. Hvað eru þetta mörg prósent af fólki með kosningarrétt og hvað eru þetta mörg prósent af þjóðinni? Ég veit um ungling sem er undir kosningaraldri sem skráði sig og mér fannst það mjög eðlilegt því það er unga fólkið sem þarf að borga þessar ósanngjörnu skuldir.

Líst vel á innleggið frá Jóni Ríkharðssyni um þau orð sem Geir Haarde viðhafði og er búið að gera svo mikið grín af. Því miður hefur hann sjálfur gert lítið úr þessum ummælum sínum.

Skora á þig að kíkja á bloggið mitt.

Gleðilegt nýtt ár. Þakka samfylgdina á blogginu og fyrir vináttu þína.

Guð veri með þér

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.1.2010 kl. 01:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.