Hvað segja menn um þá staðreynd að Icesave var ekki annað en vörumerki og visst rekstrarform Landsbanka Íslands hf., sem var fyrirtæki með starfsleyfi á EES-svæðinu, með skrifstofu í London og að þess vegna var ætlazt til þess af bankanum að hann uppfyllti allar kröfur brezka tryggingasjóðsins (FSCS) um innistæðutryggingar, ef tryggingaverndin í heimalandinu (Íslandi) væri minni (þ.e. næði ekki til jafnhárra upphæða)? Hvað segja menn þá um þær upplýsingar frá Bretum sjálfum, að þar með gátu Icesave-viðskiptavinir Landsbankans verið vissir um þá tryggingavernd sem þeir höfðu hjá FSCS?
Ekki er það gæfulegt að þegja um þá staðreynd, að allt frá desember 2001 bar Landsbankanum (óháð bankareikninga-rekstrarformum hans) að borga árlega iðgjöld til brezka fjármálaeftirlitsins (FSA) – iðgjöld sem gengu að stórum hluta til FSCS.
Hvers vegna afneita Icesave-borgunarsinnar eins og Magnús Helgi Björgvinsson staðreyndum? (Ég vísa hér til svara hans á þessari vefsíðu minni í tilefni af stórmerkri Morgunblaðsgrein Lofts Þorsteinssonar, varaformanns Þjóðarheiðurs.)
Vildu menn eins og Magnús í alvöru, að Icesave-innistæðueigendur færu á mis við þá tryggingavernd, sem þeir áttu heimtingu á hjá brezka tryggingasjóðnum vegna greiðsluþrots Landsbankans?
Hverra málsvari ertu, Magnús Helgi Björgvinsson? Gordons Brown og Alistairs Darling? Eða ertu bara illa upplýstur páfagaukur vanhæfra ráðamanna Samfylkingarinnar?
En að ábúðarmestu ábyrgðarmenn fjármálalífs Vesturlanda eins og Dominique Strauss-Kahn eða Brussel-nómenklatúran séu í standandi vandræðum vegna þess að Evrópubandalagið og voldug ríki þar voru tekin í bólinu með allt niðrum sig í innistæðutryggingamálum, það kemur mér ekkert á óvart.
Þær lofa hana fyrir að gera vel við fátæka. Eins og hverja – öryrkja og lífeyrisþega?
Þær lofa hana fyrir "störf hennar" – eins og Icesave og innlimunarprógrammið?
Þær taka ekki eftir, hverjum klukkan glymur. Hafa sennilega setið heima og slökkt á sjónvarpinu þegar þjóðin hafnaði Icesave-ólögum engrar annarrar en Jóhönnu og allra hennar fylgispöku Samfylkingarkvenna og mannleysa á þingi.
Samfylkingin nýtur nú stuðnings 23,1 prósents kjósenda samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Í könnun blaðsins í janúar síðastliðnum sögðust 28,7 prósent styðja flokkinn, og fylgið hefur því dregist saman um tæpan fimmtung, eða 5,6 prósentustig.
Er þetta allt vegna vinsælda "starfa" Jóhönnu á þingi og í Stjórnarráði?
Eða er þetta bara veruleikafirrtur smáhópur kvenna sem reynir að streitast á móti stríðum straumi örlaganna og kann ekki betra ráð en afkáraleg öfugmæli um þennan afspyrnu-seinheppna verkstjóra sinn sem svo til engu hefur komið í verk?
Greinin, birt í dag: Forsendubrestir á Icesave-samningunum, er hikstalaust mesta kjaftshögg (kurteislegt þó) sem nokkur löggjafar-meirihluti Alþingis hefur fengið á sig í gervallri þingsögunni. Á öllum Icesave-lögunum reynast þeir grundvallar-formgallar, að rangir aðilar eru hafðir þar báðum megin borðsins. Okkar megin er það íslenzka ríkið – sem hinn rangi ábyrgðaraðili fullra trygginga Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta – og Bretanna megin er það brezka ríkið og ríkissjóður þess, sem í raun á enga aðild að málinu sjálfu!
Féð, sem kom og koma bar til Icesave-innistæðueigenda í Bretlandi, kom frá brezka tyggingasjóðnum FSCS, sem fekk tímabundið lán frá seðlabanka Bretlands, Englandsbanka (sem er ekki brezki ríkissjóðurinn) þar til allir bankar í Bretlandi hafa greitt það til FSCS, sem þeim BER að greiða vegna greiðslufalls Landsbankans.
Öllum, sem þekkja til eðlilegs réttarfars og dómsmála, er kunnugt, að það gerist iðulega, að málum sé vísað frá dómstólum vegna formgalla. Hér í þessu máli er um grundvallar-formgalla að ræða, og því er eðlileg sú krafa Lofts og allra réttsýnna manna, að þessum málatilbúnaði Brown-stjórnarinnar brezku verði vísað frá. Loftur hefur þegar skrifað öllum alþingismönnum bréf með tilvísan til greinar sinnar og með hvatningu til þeirra að fella úr gildi það, sem eftir er af Icesave-lögum í langasafni Íslands. Samtökin Þjóðarheiður (sjá neðar) taka undir þá kröfu hans.
Niðurstaða og lokaorð Lofts eru þessi:
Staðan er því sú, að ríkisstjórn Íslands hefur gert samning við ríkisstjórnir nýlenduveldanna um að greiða fúlgur fjár inn í ríkissjóði þessara landa. Haft er að yfirskyni að þetta séu bætur til innistæðu-eigenda í Icesave-útibúum Landsbankans. Ekkert getur verið fjær sannleikanum, því að starfandi bankar í Bretlandi og Hollandi eru nú þegar byrjaðir að greiða tryggingasjóðunum þær bætur sem þeir greiddu. Bankarnir eru að greiða tryggingasjóðunum gömul iðgjöld, sem nú koma til innheimtu. Fullkomnir forsendubrestir eru því á Icesave-samningunum og bara af þessari ástæðu einni er nauðsynlegt að Alþingi afnemi lögin 96/2009 samstundis. Jafnframt verður ríkisstjórnin að gefa yfirlýsingu um að Icesave-samningarnir hafi verið gerðir á röngum forsendum. Icesave-deilan er í raun einn stór misskilningur og þjóðarheiður krefst þess að íslensk stjórnvöld geri umheiminum grein fyrir þessari stöðu.
Loftur Þorsteinsson er verkfræðingur og vísindakennari g hefur skrifað margar blaða- og vefgreinar um Icesave-málið. Hann er varaformaður Þjóðarheiðurs, samtaka gegn Icesave, sem stofnuð voru hinn 24. febrúar sl. Félagsmenn voru orðnir 62, þegar síðast fréttist. Þjóðarheiður var í gær að opna vefsíðu á Moggablogginu, sjá hér: Þjóðarheiður – veffang: thjodarheidur.blog.is. Gerizt bloggvinir samtakanna og takið þar þátt í umræðum um Icesave-málið!
PS.  Grein Lofts birtist á sama tíma og skoðanakönnun sýnir, að Icesave-stjórnin nýtur ekki nema 39% fylgis, en andstæðir henni eru rúmlega 60% aðspurðra!
Ég mun ræða þessi mál í erindi mínu í Útvarpi Sögu í dag, nú í hádeginu, kl. 12.40–13.00.
Den hofmodige baronesse har det for hyggeligt for å føle en stakkars nordatlantisk småfolks smerter. Hennes og den storbitiske Etablissements samvittighet er ganske uberørt af omtr. 100.000 n.kr. ulovlig ekstra-skatt på kvar og ein individ i Island til UK's bate. Det er visselig mykje mere humant enn kva Fiji-øybuene måtte lide fra de storbritiske hele tiden fra det nittende århundrede, så det slepper godt – er fakisk en ganske storartet, edel framtreding!
Þannig var það litla innlegg, sem ég hugðist setja á vefsíðu-slóð ABC Nyheter á nýliðnum degi, en tókst ekki af einhverjum tæknilegum ástæðum. Á þá síðu rataði ég gegnum frétt Mbl.is (sjá tengil hér neðar), þá frétt sem byrjaði þannig:
„Nei, það er ekki óhæfilegt að við krefjum Ísland um endurgreiðslur Icesave-innistæðanna,“ sagði barónessa Cohen af Pimlico við umræður á Evrópuþinginu í Brussel í gær ..."
Bloggarar fagna því frumkvæði Birgittu Jónsdóttur, að reynt verði að ná sátt og samstöðu þingflokkanna um þingmál. Því aðeins er unnt að taka undir þetta, að það eigi við um góð og gæfuleg þingmál. Þar til heyra engin Icesave-mál sem ganga út á að láta Íslendinga borga ólögvarðar kröfur yfirgangssamra ríkja sem neytt hafa færis gegn okkur með blekkingum og ódrengilegum hætti.
Fyrir þessum síðustu orðum er svo sannarlega innistæða í vopnabúri sannleikans.
Baráttan heldur áfram. Ekkert Icesave!
Gerizt félagar í Þjóðarheiðri – samtökum gegn Icesave.
Einhverjum Þjóðkirkjuprestum finnst 999.000 kr. of lítil mánaðarlaun fyrir biskupinn! (telja þeir sig í alvöru vera að gera honum greiða með þessu?).
Flugumferðarstjórum finnst ekki nóg að slefa vel yfir 900.000 krónur og ætla í verkfall!
Vilja menn tvær þjóðir í einu landi? Hvernig dettur þessari stétt í hug að krefjast svo hárra launa? Og prestarnir ættu að skammast sín. Þótt þeim þyki kannski of skammt milli sín og biskups í launum, er það einfaldlega af því, að þeir sjálfir eru á allt of háum launum, svipuðum og alþingismenn; þeir fyrrnefndu eru þó tvöfalt fleiri og gott betur.
Skera niður, skera niður, það er lausnin, og hætta að taka lán. Eða er Steingrímur enn eitt 2007-lánastuðs-tilfellið?
Upp með samvizkuna, niður með græðgina!
Steingrímur safnar skeggi, þráir að "koma á fundi" með Bretum og Hollendingum, þegar hann þvert á móti ætti að fagna fundaleysinu og fara að gera eitthvað í staðinn. "Grundvallaratriðið" segir hann "að koma þessu af stað aftur" – ekki er hann hyggnari og gætnari en svo. Þetta er mál, sem íslenzka ríkið á að segja sig frá, enda er það ekki aðili máls, samkvæmt eðli þess, í raun. Ég minni á þessi atriði í yfirlýsingu um málstað Íslands frá Þjóðarheiðri – samtökum gegn Icesave, um það mál:
Það voru mistök hjá stjórnvöldum að gera ágreining um málefni einkabanka að pólitísku og þjóðréttarlegu samningamáli.
Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave hafna því að íslenskum almenningi verði gert skylt að axla skuldaklyfjar, sem eru til komnar vegna starfsemi Icesave-útibúa Landsbankans. Hvorki stjórnarskrá lýðveldisins né regluverk Evrópusambandsins heimila slíkar álögur. Þjóðarheiður telur að engar forsendur séu fyrir ríkisábyrgð á skuldum einkafyrirtækja, hvorki Landsbankans né annarra. (Sbr. einnig hér: ORÐSENDING TIL ÍSLENDINGA.)
En Steingrímur vill óður og uppvægur funda með fjendum okkar, og nú segir hann sig og sitt fólk hafa "boðizt til að vera gestgjafar og værum mjög hamingjusöm [sic!!] með það að næsti fundur yrði á Íslandi ef það gæti hentað, en við látum það ekki stranda á því ..." o.s.frv.
Það kom reyndar fram í kvöldfréttum Rúv, af hverju slitnað hafi upp úr viðræðunum:
Fyrir síðustu helgi, áður en þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave fór fram, lagði íslenska samninganefndin fram plagg í viðræðum sínum við bresku og hollensku nefndirnar. Plaggið átti að vera upplegg fyrir framhald viðræðna um lausn Icesave-deilunnar.  Samkvæmt heimildum fréttastofu var þessu uppleggi íslensku nefndarinnar ekki vel tekið.  Fjölmargar athugasemdir voru gerðar og frekari viðræðum á grundvelli þess hafnað. (Fréttin Ágreiningur hindrar Icesaveviðræður á Rúv-vefnum.)
Skyldi þarna hafa verið um sóknarskjal að ræða frá þeim Lárusi L. Blöndal hrl., Lee Buchheit og Donald J. Johnston hinum kanadíska í viðræðunefndinni? Urðu Bretagreyin klumsa við? Fengu þeir kannski á baukinn þarna fyrir að hafa farið offari?
Hvað vitum við? Við fáum allt of lítið að vita. Og engin er stoð í Steingrími. Hans hlutverk er að gera sig breiðan í fjölmiðlum, en árangurinn er eins og botninn í sögunni af Bakkabræðrum: suður í Borgarfirði.
Hættið bara að svíkja þjóðina, Steingrímur og Jóhanna og allt ykkar lið – þá skulum við láta ykkur í friði.
Umboðslausi utanþingsráðherrann með ,,glórulaust rugl"?
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, brást í morgun mjög harkalega við ábendingum Alex Jurshevskis í fjölmiðlum í gær, en sá erlendi sérfræðingur í skuldavanda þjóða varaði okkur við því að taka fleiri erlend lán og mælti eindregið gegn því, að við borguðum Icesave-rukkun Breta og Hollendinga.
,,Glórulaust rugl" í Jurshevski, segir Gylfi í frétt Rúv – ekki dugði minna til. Þótt það komi ekki fram í þeirri veffrétt Rúv, sem finna má þó allýtarlega á þeim tengli, þá svaraði Gylfi því sérstaklega til í útvarpinu sjálfu, að norrænu lánin "og Icesave-lánið" væru hagstæðustu lánin sem okkur stæðu til boða.
Hér lýgur ráðherrann og ekki í fyrsta sinn. Í 1. lagi höfum við ekki fengið neitt "Icesave-lán" frá Bretum og Hollendingum og hefur aldrei staðið til, heldur höfum við fengið þaðan ólögvarða, tröllaukna rukkun vegna einkabanka, rukkun sem jafnvel Icesave-stjórnvöldin huglausu á Íslandi hafa þó haft þor til að nefna í sínu frumvarpi til Icesave-laganna skammvinnu, að við viðurkennum ekki lagaskyldu okkar til að greiða!
Í 2. lagi var á það bent í góðri grein á viðskiptasíðu Morgunblaðsins, að vaxtakjörum Icesave-samningsins frá í október og á norrænu lánunum verður alls ekki jafnað saman – og ekki heldur þeim skömminni skárri vaxtakjörum, sem Bretar eru sagðir hafa boðið í febrúar/marz og líkt við norrænu kjörin. Þar er nefnilega sá reginmunur á, að Icesave-pakkinn skapar hér enga eignastöðu á móti skuldarviðurkenningunni, en norrænu lánin gera það hins vegar og gætu t.d. borið um 4% vexti, ef lögð væru inn á erlenda reikninga.
Okkur vantar nýjan efnahags- og viðskiptaráðherra, þessi er gersamlega vanhæfur til að fjalla um Icesave-málið.
PS. um annað málefni: Endilega látið ekki hjá líða að skoða forvitnilega umræðu um fádæmatíðar Brusselferðir manna í alls kyns samtökum og skoðanaskipti þar um á vefsíðu minni hér neðar:  Stjórn SUF misnotar aðstöðu sína til andþjóðlegrar stefnu í óþökk kjósenda Framsóknarflokksins
Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna gefur nú út fávíslega ályktun um "að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu [sé] í eðlilegum farvegi eftir að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákvað að mæla með því við leiðtoga sambandsins að hafnar verði aðildarviðræður við Íslendinga."
Hvað er svona "eðlilegt" við þetta – að lýðveldið Ísland stefni á að láta innlimast í meginlands-stórveldi? Hvernig getur það verið "eðlilegt" fyrir ungmennasamtök flokks, sem á sér að verulegu leyti stoð í kjósendum, sem lifa á landbúnaði og sjávarútvegi, að taka stefnuna á að brjóta niður nokkrar helztu stoðgreinar í atvinnuháttum bænda og setja íslenzkan sjávarútveg í gíslingu Evrópubandalagsins?
Stjórn SUF hefur áður tekið allt of lingeðja afstöðu til Evrópubandalagsins, það sést í frétt af ályktun þar frá 19. marz 2008, þó að eitt atriði sé þar vissulega gott, en því var slegið upp í fyrirsögn fréttarinnar (á vefsíðu SUF) og að því er virðist til að lina þjáningu lesenda við að frétta þar, að forysta SUF vill stefna landinu inn í gin Evrópubandalagsins. Þeir kváðust þó vilja, þar og þá, að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði um umsóknina sjálfa:
SUF vill þjóðatkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið
Nú eru þeir hættir að minna á þá þjóðaratkvæðagreiðslu, eftir að Samfylking og Vinstri græn sviku þjóðina um hana og hafa jafnvel ekki lofað, að höfnun meirihluta þjóðarinnar á "aðildarsamningi" (þegar hann verði tilbúinn) verði bindandi. Stjórn SF "fagnar" nú því,  "að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu [sé] í eðlilegum farvegi" o.s.frv. – Skyldu þeir vera farnir að þiggja fríar flugferðir í glanshallirnar í Brussel, ungu Framsóknarmennirnir? Hefur einhver upplýsingar um það?
Það verður að veita þessu fólki fullt aðhald. Menn ættu t.d. að vera á varðbergi gagnvart ekki aðeins því, að borið sé "fé" eða öllu heldur hlunnindi og svíkjandi gæði á stjórnarmenn í slíkum samtökum, heldur einnig gagnvart því, að ekki sé verið að planta inn í þau málpípum erlends stórveldis, sem vill innbyrða ríki okkar, þjóðinni og þar með óbreyttum Framsóknarmönnum til óþurftar og bölvunar.
Ekki verður kvartað yfir öllu í stefnu SUF, t.d. finn ég á vefsíðu samtakanna eftirfarandi ályktun dags. 13. nóv. 2009 (og leyfi mér að feitletra hér mikilvægustu áherzluna þar):
Stjórn SUF harmar grundvallarbreytingar á Icesave fyrirvörum
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna harmar þær grundvallarbreytingar sem gerðar hafa verið á fyrirvörum Alþingis frá því í sumar í viðaukasamningi ríkisstjórnarinnar við Breta og Hollendinga í Icesave málinu.
Gengið er þvert á mikilvægustu fyrirvara Alþingis varðandi greiðsluhámark og rétt Íslands á að málið verði útkljáð fyrir óvilhöllum dómstóli. Einnig eru Brussel-viðmiðin að engu höfð, en þau voru lykilatriði í því að málið var tekið úr eðlilegum lagalegum farvegi og sett í samningaferli sem tryggja átti sanngjarna samninga.
Stjórn SUF minnir á að að með samþykkt Icesave skuldbindinganna, sem byggja ekki á lagalegum grunni, er málinu alls ekki lokið, því þá á eftir að greiða skuldbindinguna sem mun koma illa við íslenskan almenning næstu áratugi. Varðstaðan er núna !
Já, núna ber ykkur að standa vörð um sjálfstæði Íslands, fjárhagslegt og stjórnarfarslegt, og réttindi þjóðarinnar, ungu Framsóknarmenn!
PS: Ég mótmæli því enn einu sinni, að blaðamenn Moggans séu enn og aftur og sífelldlega að flagga fánum Evrópubandalagsins með öllum fréttum sem tengjast þessu bandalagi. Þetta hefði jafngilt því, að í öllum fregnum af óskum Hákonar gamla um, að hann vildi leggja Ísland undir sitt konungsvald, hefði fylgt áberandi og litskrúðug flöggun á norska skjaldarmerkinu. – Myndu þessir blaðamenn gera það sama við bandaríska fánann annan hvern dag, ef einhverjir flokkar hefðu fengið samþykkt, að sótt yrði um "inngöngu" í bandaríska ríkjasambandið ("bara til að athuga, hvað okkur bjóðist")?!
Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave óskar Íslendingum til hamingju með úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Þau úrslit, þar sem 98,1% þeirra, sem tóku afstöðu, sögðu NEI við Icesave-lögunum frá 30. desember, eru merkur atburður í sögu þjóðarinnar. Því ber að fagna að svo afgerandi meirihluti lét andstöðu sína í ljós. Það er mikilvægur áfangi í varnarbaráttu almennings gegn yfirgangi erlendra ríkja. Um leið og samtökin gleðjast yfir staðfestu meirihluta þjóðarinnar, fordæma þau stjórnvöld fyrir linkind gagnvart erlendri ásælni. Ríkisstjórnin hefur gerst sek um þau afglöp að láta undir höfuð leggjast að tala máli okkar, og hún hefur ekki komið þjóðinni til varnar gegn kúgun annarra ríkja.
Þjóðaratkvæðagreiðslan var nýtt upphaf að baráttu meirihluta Íslendinga fyrir algerri höfnun á kröfum Bretlands og Hollands. Þessi árangur hefði ekki náðst án baráttu hins þögla meirihluta, sem sýndi styrk sinn á þessum merka degi, 6. marz 2010.
Réttur almennings til að hafna ólögmætum álögum hefur nú verið staðfestur. Þrautseig þjóð, sem stendur bjargföst á lagalegum grundvallaratriðum og heldur þeim fram af rökvísi, verður ekki sigruð. Jón Sigurðsson forseti hefði verið hreykinn af þjóð sinni á þessum tímamótum.
Sérstakar þakkir hlýtur forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, sem sannaði að fullveldi þjóðarinnar er í höndum hennar sjálfrar og kom í veg fyrir að Ísland yrði gert að skattlandi tveggja gamalla nýlenduvelda. Með þjóðaratkvæðinu var stjórnarskrá lýðveldisins heiðruð. Framvegis þarf að koma í veg fyrir að ólýðræðislegu þingræði verði flaggað sem eðlilegu stjórnarfari á Íslandi. Lýðræðið á sér þann grundvöll að fullveldið er hjá þjóðinni. Það mun ekki verða látið af hendi.
Þjóðarheiður hafnar alfarið gjaldskyldu ríkisins vegna Icesave-reikninga Landsbankans. Þar skiptir engu hve langt ráðamenn okkar voru reiðubúnir að ganga (þvert á móti ákvæðum stjórnarskrárinnar!) til að láta ríkissjóð borga gríðarlegar fjárfúlgur vegna máls þessa á fyrri stigum þess, undir óbilgjörnum þrýstingi frá ríkjum sem notuðu sér neyð landsins til að beygja ráðamenn okkar til hlýðni.
Nú skiptir mestu að hvika hvergi frá rétti okkar og lagalegri stöðu. Samtökin Þjóðarheiður standa eitilhörð gegn öllum samningaumleitunum við Breta og Hollendinga vegna hinnar ólögvörðu kröfu þeirra að veitt verði ríkisábyrgð vegna erlendra skulda banka í einkaeigu.
Allar samningaviðræður ríkisins við Bretland og Holland eru misráðnar og hafa leitt til langvarandi deilna og reiptogs sem hefur sett Alþingi Íslendinga í gíslingu, á sama tíma og fjölskyldur og atvinnuvegir glíma við mestu efnahagskreppu síðari áratuga.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem MMR gerði og var birt 8. marz, telja um 60% landsmanna að Íslendingum beri alls ekki að ábyrgjast kröfur Bretlands og Hollands. Heilbrigð skynsemi segir okkur að almenningur í þessu landi hafi engar skyldur til að greiða himinháar kröfur frá ríkissjóðum 250 sinnum stærri þjóða. Það eru tryggingasjóðir og bankar í þessum löndum sem bera ábyrgð á umræddum kostnaði með iðgjöldum sínum. Kröfugerð Bretlands og Hollands á okkar hendur er hrein fjárkúgun.
Lög nr. 96 frá 28. ágúst 2009 gefa Bretum og Hollendingum færi á því að skuldsetja lýðveldið vegna Icesave með því að þeir fallist á þá fyrirvara sem settir eru í lögunum. Því er brýnt að umrædd lög verði felld úr gildi. Ríkisábyrgð á Icesave-skuld Landsbankans samræmist hvorki stjórnarskrá, evrópskum lögum, þjóðarhag né almennu réttlæti. Þjóðarheiður krefst þess að lög nr. 96/2009 verði afnumin og Alþingi fari þannig að þjóðarvilja.
Ofangreind orðsending, samþykkt miðvikudaginn 10. þessa mánaðar, var send öllum helztu fjölmiðlum. Skyldi hún verða þögguð niður eða einungis birt í örstuttu ágripi, eins og átti sér stað um yfirlýsingu um málstað Íslands frá sömu samtökum?
Hér er heimasíða samtakanna:  Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave. Í samtökunum er nú fimmtíu manns. Í stjórn Þjóðarheiðurs voru kosin:  Jón Valur Jensson, formaður, sími 616–9070, Loftur Altice Þorsteinsson, varaformaður, hlutverk@simnet.is,  Elle Ericson, ritari, s. 691-6719, elle27@ymail.com, Guðni Karl Harðarson, meðstjórnandi, s. 692–1877, María Jónasdóttir, meðstjórnandi, maria.jonas@simnet.is,  Theódór Norðkvist, meðstjórnandi, s. 690–8825, og Friðrik Kjarrval, varamaður.
Lítið á myndina, sem fylgir frétt Mbl.is (tengill hér neðar; smekkið á myndina til að sjá hana stærri), þar er mótmælaspjald gegn Icesave. Sjálfur var ég við annan mann með enn stærra mótmælaspjald, sem líta má hér:
"Það er réttur hvers manns að vera vitrari í dag en í gær."
– Guðni Ágústsson í góðri Mbl.grein fyrr í vikunni.*
Svo hittist á, að þessi vísdómsorð eiga sérdeilis vel við um hollenzka þingmenn sem funduðu með InDefence-mönnum um Icesave, skv. Mbl.is-frétt kvöldsins. Þeim fyrrnefndu kom það á óvart að heyra um merkileg ummæli Wouters Bos, fyrrv. fjármálaráðherra Hollands, frá vorinu 2009, "þar sem hann sagði að innstæðutryggingakerfin hefðu ekki verið hönnuð fyrir kerfishrun, heldur fall einstaka banka. Þeir hafi látið lesa það fyrir sig þrisvar. "Þetta virtist vera nýtt fyrir þeim, þannig að það gæti verið áhugavert ef fleiri gerðu sér  far um að útskýra röksemdir Íslendinga í málinu beint fyrir  þingmönnunum til að fá gagnkvæman skilning. Þá fannst mér til dæmis ekki ljóst hjá þeim hvernig lagt var upp með forsendur innstæðusjóðanna, það er að þeir hefðu ekki verið hannaðir fyrir svona stór áföll," sagði Magnús Árni Skúlason, InDefence-maður, í viðtali við Mbl.is (sjá miklu nánar í tenglinum hér neðar – en allar leturbreytingar eru mínar).
InDefence eru samtök sem hafa staðið sig vel í að miðla upplýsingum til útlendra frétta- og ráðamanna um Icesave-málið, en hins vegar sýti ég það alltaf, þegar ég sé InDefence-menn gangast inn á, að Íslendingum beri að borga eitthvað vegna þessara reikninga einkabanka; þeir vinna sem sé á þeim grundvelli að reyna að komast að málamiðlun um þetta deilumál í milliríkjasamningum.
Allt annar er málefnagrundvöllur nýrra samtaka, sem nefnast Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave. Við höfnum allri gjaldskyldu íslenzka ríkisins vegna Icesave, bendum á, að þetta er í eðli sínu kröfuréttarmál einstaklinga, fyrirtækis og tryggingarsjóða, ekki milliríkjapólitískt mál, og byggjum við þá vörn okkar á lagalegum grunni. Félagsmenn samtakanna eru nú nákvæmlega 50.
Þeir, sem gerast vilja félagsmenn, geta haft samband við okkur stjórnarmenn samtakanna, sjá nánar hér.
* Mbl. 10. marz 2010: Guðni Ágústsson: Jöfnum nú leikinn við Bretland (mjög áhugaverð grein um Icesave-málið). M.a. fylgir Guðni þar eftir þeirri sjálfsögðu áherzlu sinni strax haustið 2008, að krefjast beri fjárbóta af brezku ríkisstjórninni vegna fruntalegrar beitingar hennar á hryðjuverkalögum gegn íslenzkum bönkum, fyrirtækjum og Seðlabanka Íslands.
Það er ekki nóg að brosa blítt og segjast "vilja hjálpa Íslandi," en taka svo þátt í Icesave-fjárkúgun gegn okkur eins Lene Espersen, utanríkisráðfrú Danmerkur, og utanríkisráðherrar Svía og Finna, skv. Ritzau-frétt – reyndar er ekki talað um fjárkúgun þar, heldur að Ísland eigi að komast "að samkomulagi um endurgreiðslu til Breta og Hollendinga vegna Icesave." – Endurgreiðslu á hverju? Við höfum ekkert fengið frá Bretum og Hollendingum í tengslum við þetta mál, einungis tilkynningar um lygalán og fáránlegar kostnaðarrukkanir stílaðar á rangan aðila, ásamt ólöglegri okurvaxtakröfu!
Norsk stjórnvöld, sem beittu sér gegn okkur í Icesave-málinu í trássi við vilja margra Norðmanna (20% telja okkur eiga að borga Icesave) og beittu okkur um tíma fjárkúgun þvert gegn tillögum þriggja norskra þingflokka, hafa nú loksins gefizt upp á því ófagra framferði sínu. Það er gleðilegt.
Allir þjóðhollir Íslendingar, sem sendibréfsfærir eru á dönsku og sænsku, ættu nú að einbeita sér að því að uppfræða Dani, Svía og Finna um ranglætið, sem fólgið er í Icesave-málinu, og stuðla þannig að þrýstingi á þau stjórnvöld þeirra, sem brugðizt hafa Íslendingum með heigulslegri stefnu sinni í þessu Icesave- og AGS-lánamáli.
Annars var Morgunblaðið með frábæran leiðara um þessi norrænu mál á nýliðnum degi. Hráskinnaleikur bræðraþjóða nefnist hann, verðskuldar sannarlega mikinn lestur, og úr því að dagurinn er liðinn, auk þess sem Morgunblaðið birtir opinberlega allar ritstjórnargreinar sínar á hinni opnu vefslóð morgunbladid.blog.is, þá ætti að vera í lagi að birta hér þann afar góða leiðara, sem sýnir vel kjarna þessa máls án undansláttar og fagurgala:
Hráskinnaleikur bræðraþjóða
Forseti Íslands hefur gagnrýnt pólitísk stjórnvöld á Norðurlöndum fyrir að láta nota sig sem verkfæri til að knýja fram samþykki á ólöglegum kröfum Breta og Hollendinga. Jafnvel þótt fjandþjóðir ættu í hlut væri erfitt að skilja erindrekstur af þessu tagi. Íslenski forsætisráðherrann kallaði einstæða atkvæðagreiðslu eigin þjóðar „hráskinnaleik“. Það var furðuleg nafngift. En betra hugtak verður á hinn bóginn vart fundið á framgöngu stjórnvalda „bræðraþjóðanna“ á Norðurlöndum.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segist ekki setja nein skilyrði um Icesave fyrir lánafyrirgreiðslu sinni. Stjórnendur sjóðsins vita að þetta er í besta falli hálfsannleikur. Össur Skarphéðinsson hefur hróðugur vitnað í starfsbróður sinn í Bretlandi, sem segi að hann og breska ríkisstjórnin setji samþykki við Icesave ekki sem skilyrði fyrir fyrirgreiðslu AGS. En AGS segir að önnur lánafyrirgreiðsla verði að liggja fyrir svo honum sé fært að inna sínar skyldur og loforð af hendi. Þar koma lán Norðurlandanna inn í fjárkúgunina. Þar er allt í einu allt hengt á Icesave.
Af hverju taka þær ríkisstjórnir að sér þá óþurftarframgöngu? Af hverju eru þær með Svarta-Péturinn upp í sinni ermi og leyfa rukkaraþjóðunum að sitja uppi með sakleysissvip hjá AGS og vera með látalæti við íslenska ráðamenn sem svo aulast til að trúa skrípaleiknum? Fullnægjandi svör hafa ekki fengist á þessari ótrúlega ódrengilegu framgöngu norrænu ríkisstjórnanna.
Helst var þó að skilja á vandræðalegum ummælum Störe, utanríkisráðherra Noregs, að hann teldi framgöngu sína og annarra forystumanna á Norðurlöndum gerða í þökk og með þegjandi samkomulagi við íslenska flokksbræður í ráðherrastólum. Og svo ótrúlegt sem það er þá verður því ekki neitað að oftar en einu sinni og oftar en tvisvar virðast íslenskir forystumenn Samfylkingar og Vinstri grænna hafa pantað yfirlýsingar af slíku tagi.
Það má vissulega færa fyrir því rök að forseti Íslands sé kominn vel út fyrir sitt hlutverk með yfirlýsingum sínum um framgöngu ríkisstjórna á Norðurlöndum. En í þetta sinn hefur hann ríkar málsbætur. Það er jafnhörmulegt fyrir forseta Íslands og alla aðra að sjá að forystumenn íslenskrar ríkisstjórnar hafa hvorki vilja né burði til að tala máli þjóðar sinnar, þegar hún þarf mest á því að halda.
Hér kynnast menn rökleikni Morgunblaðsritstjóra, og þetta blasir þar við nánast hvern dag. Þar að auki má geta þess, að fréttaflutningur blaðsins um Icesave-málið er algerlega fyrsta flokks, mun betri en Fréttablaðsins, og að afar mikið birtist þar af góðum, aðsendum greinum, um Icesave-málið sem önnur mál.
Nú hafa margir "refsað" Mogganum um allnokkurn tíma með uppsögn áskriftar fyrir að ráða Davíð Oddsson sem ritstjóra blaðsins (hinn er Haraldur Johannessen, sem var áður ritstjóri Viðskiptablaðsins). Þótt ég sé á allt annarri stjórnmálaskoðun en Davíð, vil ég benda þessu fólki á, að það fer mikils á mis að lesa ekki þetta blað, sem svo vel hefur gegnt hlutverki sínu á sviði frétta, málefnaumræðu, menningar og afþreyingar.
Sé það enn að brjótast um í hugum sumra, að ekki geti þeir hugsað sér að kaupa dagblað, hvers útgáfufyrirtæki fekk afskrifaða þriggja milljarða króna skuld sína við banka, þá vil ég góðfúslega benda hinum sömu á, að útgáfufélag Fréttablaðsins fekk niðurfelldar um það bil tíu sinnum meiri bankaskuldir, 29–30 milljarða, og er jafnvel að biðja um annað eins til viðbótar!
Ég verð með erindi í Útvarpi Sögu í dag, föstudag, kl. 12.40–13.00.
Svikagengið, sem vill láta Íslendinga taka á sig gerviskuld í þágu fjárkúgunarríkja*, getur ekki endalaust haldið því fram, að hagur ríkissjóðs vænkist við það. Staðreyndir tala öðru máli. Krónan styrkist, veikist ekki, eftir hina glimrandi góðu útkomu úr þjóðaratkvæðagreiðslunni.
* "Ef Ísland fer ekki eftir alþjóðlegum skuldbindingum sínum vitum við ekki hvers vegna við ættum að horfa á jákvæðan hátt til Íslands ef landið sækir um aðild að Evrópusambandinu. Það er fyrra atriðið. Hitt er að við vitum ekki hvers vegna við ættum að líta jákvæðum augum á umsókn Íslands um lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum,“ segir Frans de Nerée tot Babberich, talsmaður þingflokks Kristilegra demókrata (CDA) í efnahagsmálum í Hollandi.
Vart er hægt að skilja orð hans öðruvísi en sem hótun, enda hafa Hollendingar áhrif innan sjóðsins,
segir í forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag: Hyggjast beita sér gegn samvinnunni við AGS
Ekki þykir mér þessi Frans de Nerée tot Babberich ýkja kristilegur (köllum hann Total Babble til styttingar), þótt hann tilheyri flokki Kristilegra demókrata. Það er ekki kristinna manna háttur að beita smáþjóð fjárkúgun, hvað þá tvöfaldri.
Reyndar virðist þessi maður svo veruleikafirrtur, að hann telji það hótun, sem hjálpi honum, að við "fáum" ekki að láta sporðrenna landinu í Evrópubandalagið! Það er einfaldlega fagnaðarefni, að sem flest ríki þess bandalags svari umsókn stjórnarskrárbrjótanna hér á landi með því að beita neitunarvaldi gegn innlimun þjóðarinnar í þetta hrörnunarbandalag. En vissulega verður að viðurkenna, að hótunin frá þessum Total Babble hefur sennilega þau áhrif, sem henni er ætlað, á okkar öfugsnúnu Samfylkingar-þingmenn.
Nú er verið að "skoða hugmynd Þjóðverja um að stofna Gjaldeyrissjóð Evrópu." Einnig hafa Brussel-sjimpansarnir sveiflazt milli þess að hverfa frá sinni skammarlegu tilskipun um tryggingasjóði (94/19/EC) til ríkisábyrgðar* og frá henni til nýs allsherjar-tryggingasjóðs fyrir allt heila gillið (ESB eða Evrópubandalagið).
Svo á eftir að prófa þetta allt í verki, og kannski verður þetta tóm vitleysa og eilífðar-órakostnaður. Hvað geta þeir vitað? Þeir vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga.
Trichet, sem er kannski maður með einna beztu viti, vill ekki hafna þeirri hugmynd, sem nefnd var fyrst hér í textanum, en lesið þetta, sem þar stendur líka:
"Jürgen Stark, aðalhagfræðingur Seðlabanka Evrópu, hefur hins vegar varað við því að þetta gæti kostað gríðarlega fjármuni og ýtt undir ósjálfstæði skuldsettari ríkja."
Það er sem ég segi: Evrópubandalagið er á sama stigi og dýr á tilraunastofu, sem til stendur að reyna á ýmis "lækningaúrræði" með óvissum afleiðingum.
Ætlum við inn í þetta gáleysisgímald?
* Þetta (ríkisábyrgð á tryggðum innistæðum í bönkum) var hugmyndin í sumar og virtist ætla að verða að veruleika, en nú hefur allt í einu verið snúið við blaðinu. Bandalagið er ekki markvissara en þetta, en samt vill Össur óður og uppvægur treysta því fyrir forsjá sinni fram í rauðan dauðann.
Já, þau voru skýr skilaboðin í Icesave-könnun MMR sem birtist í fyrradag: um 60% aðspurðra telja að Íslendingum beri alls ekki að ábyrgjast greiðslur til innistæðueigenda Icesave í Bretlandi og Hollandi. Athyglisverð eru viðbrögð Sigmundar Davíðs í viðtali hans við Mbl.is:
"Staðreynd málsins er að okkur ber engin lagaleg skylda til að ábyrgjast þessar greiðslur, sem mér heyrist reyndar fjármálaráðherra meira að segja farinn að segja sjálfur. Uppleggið, sem allir flokkar samþykktu, var að nýta þrotabú Landsbankans sem mest til að standa straum af greiðslum til Breta og Hollendinga, eins og þeir eiga rétt á samkvæmt lögum. Mér finnst mikilvægt að menn haldi sig við þá nálgun sem mörkuð var í upphafi, og hefur ekki verið vikið frá, að minnsta kosti af hálfu stjórnarandstöðunnar," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
En þá má nú spyrja Sigmund: Hvers vegna tók hann þá í mál um daginn að ræða það við Breta og Hollendinga að borga þeim yfirleitt eitt einasta pund eða evru? Hefur hann leyfi til þess? Hefur hann umboðið frá kjósendum sínum? Hefur meirihluti þjóðarinnar gefið honum til kynna, að þetta beri honum að gera?
Nei, fjarri fer því – meirihlutinn segir EKKERT Icesave! – nákvæmlega eins og samtökin Þjóðarheiður, sem ég tilheyri.
Ágæti Sigmundur Davíð, gakktu nú í samtökin – og taktu sem flesta með þér!
Heimasíða samtakanna:   http://www.wix.com/Thjodarheidur/main/