Skera ber burt sérhver ummerki mestu illmenna 20. aldar

Hún er í hæsta máta eðlileg, hugmynd austurrískra stjórnvalda að afmá í eitt skipti fyrir öll fæðingarhús foringjans hryllilega, Adolfs Hitler, sem olli dauða milljónatuga með hernaði sínum og harðstjórn, m.a. um 27.000 Austurríkis­manna, þótt Austurríki (Ostmark Hitlers) kæmi mun skár út úr stríðinu en Þýzkaland.

Nýnazistar eiga ekki að hafa neitt færi á því að gera neina dvalarstaði þjóða­morðingja nazismans að helgistöðum sínum eða sækja þangað orku til sinnar afbrigðilegu glæpastefnu.


mbl.is Ætla að rífa æskuheimili Hitlers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband